Category: Fréttir

Hvernig mætum við brotaþolum vændis? -Málþing um vændi á Íslandi-

Fimmtudaginn 22. september standa Stígamót fyrir málþingi um vændi me sérstaka áherslu á afleiðingar vændis fyrir brotaþola þess. Á málþinginu verða kynntar niðurstöður nýrra rannsókna, fjallað um bókina Venjulegar konur sem kom út í vor og svara leitað við spurningunni: Hvernig mætum við brotaþolum vændis? Nánari dagskrá kynnt síðar.