Hafa Samband
Opnunartímar
-
Mánudaga
9-18
-
Þriðjudaga
9-18
-
Miðvikudaga
13-18
-
Fimmtudaga
9-18
-
Föstudaga
9-18
-
Helgar
Lokað
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili Stígamóta hjálpar þú fólki sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi. Hjá okkur fer fram umfangsmikið starf með konum og körlum vegna nauðgana, sifjaspella og vændis.
Rúmlega 500 manns nýta sér þessa aðstoð á hverju ári.
Öll þjónusta Stígamóta við þá er þangað leita er ókeypis og hún er opin öllum þolendum kynferðisofbeldis eldri en 18 ára án tillits til búsetu þeirra.
Meginmarkmið Stígamóta eru annars vega að vera staður, þar sem konur og karlar, sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi, geta leitað þangað, fengið stuðning og deilt reynslu sinni með öðrum, sem einnig hafa orðið fyrir slíku ofbeldi eða þekkja það vel. Í boði eru einstaklingsviðtöl og sjálfshjálparhópar.
Stígamót skrifa umsagnir um þingmál og stunda öfluga fræðslu og kynningu í skólum, hjá félagasamtökum, faghópum og fleirum – umsvif þessarar þjónustu hefur farið vaxandi ár frá ári. Einnig taka Stígamót virkan þátt í fjölmiðlaumræðu.
Í gegnum tíðina hefur Stígamót lagt áherslu á fjölbreytta kynningarstarfsemi svo sem ráðstefnur, auglýsingagerð, veggspjöld, málstofur, fjöldagöngur og ýmislegt fleira.
Nánari upplýsingar: [email protected]
Hér getur þú spjallað við ráðgjafa hjá Stígamótum.
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.