Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Ekkert lát er á fólki sem leitar til Stígamóta í kjölfar kynbundins eða kynferðislegs ofbeldis. Því miður er slíkt ofbeldi viðvarandi í okkar samfélagi enda ótrúlegt umburðarlyndi fyrir slíkum afbrotum sem aðallega eru framin af körlum gagnvart konum. Afleiðingarnar eru alvarlegar og hafa áhrif á lífsgæði flestra brotaþola árum og áratugum saman. Á áttunda hundrað einstaklinga leituðu í ráðgjafaviðtöl hjá Stígamótum á síðasta ári, þar af voru 251 brotaþoli að koma í fyrsta sinn. Á bak við þá einstaklinga sem leituðu til Stígamóta í fyrsta sinn eru 455 ofbeldismenn. Mjög margir brotaþolar nefna að gerendur séu fleiri en einn.
Ráðgjafar tóku 3134 viðtöl á árinu 2025 við brotaþola og aðstandendur, en fleiri aðstandendur brotaþola sóttu stuðning til Stígamóta en nokkurn tímann áður. Auk viðtala stýrðu ráðgjafar 8 sjálfshjálparhópum fyrir konur, karla, ungar konur og konur að vinna úr afleiðingum vændis. Þá héldu ráðgjafar opin kvöld fyrir brotaþola, bæði karla og konur, veittu ráðgjöf á símavakt, útbjuggu fræðsluefni og aðstoðuðu fagfólk í málum tengdum ofbeldi. Síðast en ekki síst ber að nefna netspjallið Sjúktspjall sem ætlað er ungmennum og er opið þrjú kvöld í viku, en þetta er hluti þess umfangsmikla ráðgjafar- og fræðslustarfs sem Stígamót sinna í samfélaginu.
Tæplega 80% þeirra sem leituðu til Stígamóta árið 2025 eru konur, 17,5% eru karlar og hafa þeir sjaldan verið hærra hlutfall brotaþola. Um 3% brotaþola eru kynsegin eða skilgreina kyn sitt á annan hátt. 94% þeirra sem beittu brotaþolana ofbeldi eru karlar en 6% konur. Algengast er að brotaþolar leiti til Stígamóta eftir að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi sem barn en næst algengast er eftir nauðgun. Þá er tilefni til að hafa sérstakar áhyggjur af stafrænu ofbeldi, bæði sem ástæða komu og sem hluta af öðru ofbeldi.
Í nokkur ár hafa Stígamót þurft að vera með biðlista eftir viðtölum því erfitt hefur verið að annast eftirspurn, en á milli ára fækkaði um 67 einstaklinga á biðlista og voru þeir 80 í lok árs 2025. Þetta þýðir að bið eftir fyrsta viðtali er um það bil 6 vikur.
Í ársritinu er sérstaklega fjallað um ungt fólk og þá miklu áherslu sem Stígamót hafa lagt á forvarnarstarf meðal þess undir yfirskriftinni Sjúkást síðustu ár. Gefið var út spilið Sjúkflögg á síðasta ári sem hefur nýst mjög vel bæði í forvarnarstarfi og í ráðgjöf.
Afleiðingar kynferðisofbeldis eru alvarlegar og oft og tíðum viðvarandi og geta leitt til veikinda, örorku, sjálfskaðandi hegðunar og almennt verri lífsgæða. Þeir sem valda skaðanum þurfa sjaldan að sæta nokkurri ábyrgð en brotaþoli situr eftir með skömm, sektarkennd og vanlíðan. Á meðan þetta er staðreynd í okkar menningu er því miður þörf á samtökum eins og Stígamótum sem munu ótrauð standa vaktina áfram fyrir brotaþola og þrýsta á um samfélagsbreytingar.
Í ársriti Stígamóta fyrir árið 2025 má sjá ítarlega tölfræði upp úr komuskýrslum, umfjöllun um ungt fólk og forvarnarstarf og þá samfélagsvinnu sem Stígamót unnu á síðasta ári.
Ársrit Stígamóta má nálgast hér: Arsrit2025
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.