Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Loksins er komið að því að Stígamót geta boðið uppá námskeið (masterclass) með heimsmeistara á sviði áfalla og afleiðinga þeirra, bandaríska taugasálfræðingnum dr. Rebeccu Campbell. Fagfólk í ýmsum stéttum hérlendis hefur kallað eftir aukinni þekkingu á afleiðingum áfalla og Stígamót hafa um árabil dreymt um að miðla reynslu og kunnáttu Rebeccu.

Dr. Rebecca Campbell hefur í áratugi rannsakað hvernig ofbeldi og önnur áföll hefur áhrif á heilann, minni og hegðun og er einn fremsti sérfræðingur heims á þessu sviði. Þekking á hegðun í kjölfar áfalla getur stórbætt viðbrögð fagfólks og stofnana við kynferðisofbeldi og öðrum áföllum. Hún hefur leitt rannsóknir sem hafa gjörbylt verklagi og hjálpað stofnunum og löggæslu sem hafa brugðist skjólstæðingum sínum að breyta vinnulagi. Á viðburðinum mun Dr. Rebecca Campbell deila reynslu sinni af sannreyndum aðferðum sem byggja á rannsóknum og fjalla um hvernig við brúum bilið milli vísindalegrar þekkingar og daglegra starfa til að tryggja að kerfi styðji betur við þolendur og brotaþola.
Við hvetjum þig til að nýta þetta einstaka tækifæri og skrá þig á viðburðinn.
Dagskráin er svo:
Kl. 9:30 – Skráning
Kl. 10 – The Neurobiology of Trauma: What You Need to Know about the Brain and Trauma
Kl. 12 – Hádegismatur
Kl. 13 – Applications for Practice: How Research Can Improve Community Services for Victims
Kl. 15 – Samantekt
Kl. 15:30 – Ráðstefnulok
Athugið að fræðslusjóður stéttarfélagsins gæti endurgreitt kostnaðinn.
Viðburðurinn er haldinn á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 13. maí kl. 10-16
Miðaverð er 39.900, sætaframboð er takmarkað.
Skráning og nánari upplýsingar hér: https://stigamot.is/vara/ad-skilja-ahrif-afalla-a-hegdun-minni-og-heilsu/
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.