Viðtöl á staðnum

Þegar þú hefur pantað tíma þá færðu sms skilaboð sólarhring áður til að minna þig á tímann. Húsnæði Stígamóta er að Laugavegi 170, annarri hæð. Þegar komið er upp hringlaga stiga þá blasa við vel merktar dyr. Einnig er hægt að taka lyftu upp á aðra hæð. Dyrnar eru læstar svo það þarf að ýta á bjöllu og þér verður hleypt inn. Þegar inn er komið færðu þér sæti í biðstofunni og tekið verður á móti þér. Þú þarft ef til að hinkra augnablik eftir ráðgjafa en almennt er vel gætt að tímamörkum svo það er aldrei löng bið. Í biðstofunni er hægt að fá vatn, kaffi og te. Lagt er upp úr að umhverfið sé hlýlegt og að fólki líði sem aldrei best. Þegar komið er að tímanum þínum kemur ráðgjafinn þinn og sækir þig.

Hver ráðgjafi á sína skrifstofu og er engin þeirra eins. Þær eru líkt og anddyrið heimilislegar og eftir höfði hvers og eins ráðgjafa. Í fyrsta viðtali er oftast lögð fyrir komuskýrslu sem er ekki persónurekjanleg. Stundum er það gert aðeins seinna í ferlinu. Skýrslan samanstendur af spurningum og er lögð fyrir til að afla almennra upplýsinga um eðli kynferðisofbeldis sem kemur til góðra nota í baráttunni gegn því. Einnig hjálpar hún brotaþolum við að ná utan um ofbeldið, tjá og skoða hvaða afleiðingum það finnur fyrir. Þú þarft ekki að svara komuskýrslu ef þú vilt það ekki.