Ráðgjafi óskast á Stígamót11. september 2017

Stígamót óska eftir ráðgjafa til þess að sinna viðtalsþjónustu og hópastarfi með fólki sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi.

SKRUNAÐU

""Stígamót óska eftir ráðgjafa til þess að sinna viðtalsþjónustu og hópastarfi með fólki sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi.

Helstu verkefni:

  • Viðtöl við brotaþola þar sem unnið er úr afleiðingum kynferðisofbeldis
  • Leiða hópa þar sem unnið er með hjálp til sjálfshjálpar
  • Stuðningur við aðstandendur

Hæfni:

  • Gerð er krafa um háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. í félagsráðgjöf, sálfræði, náms- og starfsráðgjöf, kynjafræði eða skyldum greinum.
  • Reynsla af ráðgjöf er mjög mikilvæg
  • Hvers kyns þekking eða reynsla af vinnu með kynbundið ofbeldi er mikilvæg
  • Þekking á femínískri hugmyndafræði er mikilvæg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni er skilyrði 

Um er að ræða fullt starf. Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á femínískri sýn á samfélagið.

Umsóknir sendist til Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur á netfangið [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 19. september.

Öllum umsóknum verður svarað.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót