Sjúkást

Verkefnastjórnun forvarnaverkefna – laus staða27. september 2021

Stígamót auglýsa lausa stöðu í verkefnastjórnun forvarnaverkefna fyrir ungmenni. Starfið felst fyrst og fremst í umsjón verkefnisins Sjúk ást. Vilt þú leggja þitt af mörkum í baráttunni gegn kynferðisofbeldi? Langar þig að fræða ungmenni um heilbrigð sambönd, mörk og samþykki?

SKRUNAÐU

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórnun verkefnisins Sjúk ást og annarra forvarnaverkefna fyrir ungmenni
  • Undirbúningur nýs verkefnis sem felst í netspjalli fyrir unglinga
  • Hugmyndavinna fyrir herferðir og fræðsluverkefni
  • Umsjón með, framkvæmd og eftirfylgni herferða og verkefna
  • Umsjón með samfélagsmiðlum
  • Markaðs- og kynningarmál
  • Samskipti við opinberar stofnanir, félagsmiðstöðvar, skóla og fleiri
  • Fræðsla fyrir hópa
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð þekking á femínískri hugmyndafræði er skilyrði
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Reynsla af starfi með ungmennum er kostur
  • Reynsla af umsjón með samfélagsmiðlum og skilningur á stafrænni markaðssetningu er kostur
  • Reynsla úr fjölmiðlum og auglýsingagerð er kostur.
  • Geta til að tala fyrir framan stóra hópa fólks og fræða
  • Geta til að útbúa myndrænt fræðsluefni
  • Góð ensku- og íslenskukunnátta

Persónuleg hæfni:

  • Hugmyndaauðgi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Drifkraftur, ábyrgð og skipulagshæfni
  • Lausnamiðuð nálgun
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót