Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Meginmarkmiðin með stofnun Stígamóta eru annars vegar að þau séu staður sem einstaklingar sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi geti leitað til og fengið stuðning. Hins vegar eru Stígamót baráttusamtök fyrir bættu samfélagi þar sem kynferðisofbeldi er ekki liðið.
Vinnan á Stígamótum felst því í að gera einstaklinga meðvitaða um eigin styrk, aðstoða þá við að nota hann til að breyta eigin lífi og að sjá ofbeldið í félagslegu samhengi. Fólk sem leitar til Stígamóta ræður sjálft ferðinni, hve mikinn stuðning það vill og í hve langan tíma. Aðstandendur, svo sem foreldrar, makar og vinir geta einnig fengið stuðning og ráðgjöf á Stígamótum óski þeir þess.
Frá upphafi hafa Stígamót lagt kapp á það að þróa starfsemina á þann veg að ólíkir hópar brotþola upplifi sig velkomna, þar má meðal annars nefna karla, fatlað fólk, hinsegin fólk og fólk af erlendum uppruna. Jafnframt hafa Stígamót boðið upp á ráðgjöf á ýmsum stöðum utan höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við sveitarfélög á þeim svæðum. Öll þjónusta Stígamóta er ókeypis og því á færi allra að sækja hana óháð efnahag.
Stígamót, staðurinn þar sem stígar mætast og þaðan sem leiðirnar geta verið margar, hóf síðan starfsemi sína 8. mars 1990.
Frá upphafi vega hefur starfið á Stígamótum byggst á hugmyndum kynjafræðinnar um kynferðisofbeldi.
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili Stígamóta hjálpar þú fólki sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi.
Á Stígamótum starfar fjölbreyttur starfshópur sem sinnir ráðgjöf, fræðslu, pólitísku starfi, fjáröflun og öðru sem til fellur.
Framkvæmdahópur tekur ákvarðanir í stefnumarkandi málum og hefur yfirsýn yfir og stjórn á fjármálum Stígamóta.
Sjá allar okkar ársskýrslur.
Mikil áhersla er lögð á að veita fræðslu og upplýsingar um kynferðisofbeldi og afleiðingar þess. Boðið er upp á námskeið og fræðsluerindi um kynferðisofbeldi og hafa umsvif þessarar þjónustu farið vaxandi ár frá ári. Þá taka Stígamót virkan þátt í fjölmiðlaumræðu og vinna að því að skapa sem best tengsl við sem flesta samstarfsaðila og stjórnmálafólk m.a. með því að bjóða völdum hópum í eftirmiðdagskaffi hjá Stígamótum.
Stígamót skrifa umsagnir um þingmál og stunda öfluga fræðslu og kynningu í skólum, hjá félagasamtökum, starfshópum og fleirum og hafa í gegnum tíðina lagt áherslu á fjölbreytta kynningarstarfsemi svo sem ráðstefnur, auglýsingagerð, veggspjöld, málstofur, fjöldagöngur og ýmislegt fleira.
Starfið á Stígamótum er kostað af fjárframlögum ríkis, mánaðarlegra styrktaraðila stærri sveitarfélaga, ýmissa félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga. Öll þjónusta Stígamóta við þá er þangað leita ókeypis og hún er opin öllum þolendum kynferðisofbeldis eldri en 18 ára án tillits til búsetu þeirra. Með allar persónuupplýsingar er að sjálfsögðu farið sem algjört trúnaðarmál.
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.