Það söfnuðust 60.386.000 krónur!21. nóvember 2016

Þann 18. nóvember sl. létum við á það reyna hvort almenningur, fyrirtæki og stofnanir vildu leggjast á eitt með okkur við að bæta og auka þjónustu Stígamóta. Margir tóku við sér og það söfnuðust 60.386.000 krónur. Hver króna fer í að bæta þjónustuna og við erum þegar farin að undirbúa þau brýnu verkefni sem ráðist verður í.

SKRUNAÐU

Fjöldi fólks kom að átakinu. Listafólk gaf vinnu sína og Stígamótafólk deildi sögunum sínum.  Sjálfboðaliðar mönnuðu símaverið.  Auglýsingastofan Pipar vann þrekvirki og samstarfið við starfsfólk 365 miðla gekk mjög vel. 

Bindi og sokkapar frá forseta Íslands voru seld á uppboði.  Dregnir voru út ferðavinningar og fleiri vinningar og eru vinningshafar listaðir upp á heimasíðu Stígamóta stigamot.is og á Facebook síðunni okkar. 

Við erum hrærð og óendanlega þakklát fyrir stuðning ykkar sem gerir okkur kleift að ná til fleiri hópa,  þjónusta fleiri staði og auka fræðslu og vitundarvakningu. 

Takk fyrir stuðninginn

Starfsfólk Stígamóta

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót