Stígamót ganga í hús29. september 2015

Götukynnar á vegum Stígamóta ganga um þessar mundir í hús á höfuðborgarsvæðinu og kynna starf Stígamóta. Um er að ræða átak þar sem fólki er boðið að styrkja samtökin mánaðarlega til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu Stígamóta.

SKRUNAÐU

Götukynnar á vegum Stígamóta ganga um þessar mundir í hús á höfuðborgarsvæðinu og kynna starf Stígamóta. Um er að ræða átak þar sem fólki er boðið að styrkja samtökin mánaðarlega til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu Stígamóta. Það sem af er ári höfum við tekið á móti fleiri nýjum einstaklingum í viðtöl en áður sem endurspeglar líklega aukna þjóðfélagsumræðu um kynferðiofbeldi. Þá eru Stígamót með þjónustu á tveimur stöðum á landsbyggðinni og myndum við gjarnan vilja fjölga þeim stöðum – enda er kynferðisofbeldi vandamál um land allt.

Götukynnarnir okkar banka upp á hjá fólki á virkum kvöldum milli kl. 17-21. Við vonum að þið takið vel á móti þeim. Með samstöðu getum við bundið endi á kynferðisofbeldi. Ykkar stuðningur skiptir öllu mál!

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót