Starfskraftur með þekkingu á málefnum fatlaðs fólks óskast6. mars 2017

Stígamót óska eftir starfskrafti til að sinna þróunarverkefni um málefni fatlaðs fólks.

SKRUNAÐU

Stígamót óska eftir starfskrafti til að sinna þróunarverkefni um málefni fatlaðs fólks.

Helstu verkefni:

  • Þróa áfram þjónustu Stígamóta við fatlað fólk og auka sýnileika hennar
  • Efla tengsl við hagsmunasamtök fatlaðs fólks og faghópa sem vinna með fötluðu fólki
  • Fræðsla um kynferðisofbeldi og þjónustu Stígamóta
  • Viðtalsráðgjöf fyrir fólk sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi

Hæfni:

  • Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. í þroskaþjálfafræði, fötlunarfræði, félagsráðgjöf, sálfræði, kynjafræði eða öðrum skyldum greinum
  • Þekking og reynsla af vinnu með kynbundið ofbeldi er kostur
  • Reynsla af kynningar- og fræðslustarfi er kostur
  • Reynsla af ráðgjöf er kostur
  • Frumkvæði, sjálfsstæð vinnubrögð og góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar

Gert er ráð fyrir að verkefnið sé til 9 mánaða með möguleika á framtíðarstarfi ef vel tekst til. Hlutastarf kemur einnig til greina. Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á femínískri sýn á samfélagið. Fólk með fötlun er hvatt til þess að sækja um starfið. 

Umsóknir sendist til Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur á netfangið [email protected] fyrir 20. mars. Öllum umsóknum verður svarað.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót