Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
STÆRSTI SPINNINGTÍMI ÁRSINS 2017 í boði Gatorade og World Class verður haldinn 7. oktober. Spinningtíminn fer fram í Fylkisheimilinu. Þar verður búið að koma öllum spinninghjólum World Class fyrir sem eru 350 talsins. Húsið opnar kl. 9:00 og hefst fyrsti spinningtíminn af þremur stundvíslega kl. 10:00.
Miðasala hefst fimmtudaginn 20. júlí kl. 12:00 inni á www.enter.is. Hægt er að kaupa sig inn í einn, tvo eða alla þrjá tímana. Það kostar 2.000 kr í hvern tíma og rennur ágóðinn til Stígamóta. ATH ekki er nauðsynlegt að vera korthafi í World Class til að geta mætt í tímann, allir velkomnir.
Hver tími er 45 mínútur og 15 mínútna pása verður á milli tíma. Dagskráin verður sem hér segir:
9:00 – Húsið opnar
10:00-10:45 – Tími 1 (Orka&Pálína)
10:45-11:00 – Pása & happdrætti
11:00-11:45 – Tími 2 (Eva&Sandra)
11:45-12:00 – Pása & happdrætti
12:00-12:45 – Tími 3 (Unnur&Ragnhildur)
12:45 – Happdrætti
13:00 – Dagskrá lokið
14:00 – Húsi lokað
Spinningkennarar eru: Eva Sif Helgadóttir, Orka Kristinsdóttir, Pálína María Gunnlaugsdóttir, Ragnhildur Hauksdóttir, Sandra Björg Helgadóttir og Unnur Sverrisdóttir.
Það verður í boði að fara í sturtu inni í Fylkisheimilinu en einnig minnum við á Árbæjarlaugina sem korthafar World Class eru með frían aðgang að.
Ískalt Gatorade verður í boði á svæðinu.
Happdrættisvinningar verða ekki af verri endanum:
Hjólajakkar frá 66°Norður
Flugmiðar frá Wow
Aðgangur í Laugar Spa
Fæðubótarefni frá Xendurance og fleira!
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.