Spennandi hlutastarf í sumar!30. apríl 2018

Ertu í leit að áhugaverðu og gefandi starfi í sumar?

Stígamót leita að hressu og duglegu fólki til að taka þátt í kynningarstarfi og fjáröflun. Verkefnið miðar að því að kynna starf Stígamóta og bjóða fólki að leggja málefninu lið.

Starfið fer fram utandyra víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu þar sem gengið er í hús. Vinnutíminn er frá kl. 17-21 virka daga en í boði er að vinna 2-4 kvöld í viku.

SKRUNAÐU

Ef þú…

  • hefur áhuga á jafnréttismálum
  • vilt vinna að réttlátara samfélagi
  • ert þessi framfærna og opna týpa
  • hefur gaman af mannlegum samskiptum

…þá er fjáröflunarstarf hjá Stígamótum eitthvað fyrir þig!

Á móti bjóðum við góða tekjumöguleika fyrir duglegt fólk við gefandi og fræðandi starf sem miðar að því að bæta samfélagið.

Stígamót eru ráðgjafamiðstöð fyrir fólk sem hefur verið beitt kynferðisofbeldi og stóðu m.a. að átakinu #sjúkást í vetur.

Frekari upplýsingar gefur Steinunn í síma 562-6868. Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á [email protected]. Umsóknarfresturinn er til 14. maí.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót