Sjúkást 2026: Ertu í suði?24. mars 2026

 

Viltu sofa hjá? En núna? En núna? En núna? Gerðu það. Ég ræð bara ekkert við mig. Þetta er sko hrós, að ég vilji þig svona mikið. Gerum bara eitthvað aðeins. Plís.
Í ár fjallar Sjúkást um suð og skoðar hvernig það birtist og áhrifin sem það hefur. Suð er því miður alltof algeng leið sem ungmenni (og önnur) nota til að færa til og fara yfir mörk, jafnvel þótt mörkin hafi verið sett með mjög skýrum hætti. Þetta kemur fram ár eftir ár í gögnum af Sjúktspjall.
SKRUNAÐU
Átta stutt myndbönd hafa verið útbúin sem sýna ólíkar birtingamyndir suðs og hvernig hægt er að vera frekar í stuði, ásamt umræðum um samskipti. Halldóra Geirharðsdóttir leikur og leikstýrir efninu og kom hún einnig að handritsgerðinni, en handritið er skrifað af Snæbirni Ragnarssyni út frá efni og reynslu af Sjúktspjall. Ásamt Halldóru leika Björk Guðmundsdóttir og Fannar Arnarsson.

 

Myndböndin verða birt á næstu vikum á samfélagsmiðlum Sjúkást en allt fræðsluefni því tengt má finna á vefsíðu verkefnisins sjukast.is

Hvað er Sjúkást?
Sjúk ást er fræðslu- og forvarnaverkefni fyrir ungt fólk gegn kynferðisofbeldi á vegum Stígamóta. Markmið verkefnisins er að fræða ungmenni um mörk, samþykki og heilbrigð sambönd með það að leiðarljósi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi áður en það er framið.
Hvað er Sjúktspjall?
Sjúktspjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni 25 ára og yngri þar sem þau geta leitað ráðgjafar fagaðila um sambönd, samskipti og ofbeldi. Spjallið opnaði í mars 2022, en helstu þemu sem koma í gegnum spjöllin eru kynferðisofbeldi, meðvirkni og óöryggi, kynfræðsla og óheilbrigð sambönd. Sjúktspjall er opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 20-22 og má finna á www.sjukast.is.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót