Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Stígamót boða til ráðstefnu um hvað gerist eftir að kynferðisbrot eru afhjúpuð og hvaða leiðir eru til að þolendur upplifi sanngirni og réttlæti. Hvernig bregst nærumherfið við og hvernig er hægt að styðja við brotaþola en ekki síður aðstandendur og þá sem beita ofbeldi til að koma í veg fyrir að ofbeldishegðun endurtaki sig.
Elizabeth Clemants, stofnandi Hidden waters kynnir rannsóknir sínar og ráðgjafaúrræði fyrir brotaþola, gerendur og aðstandendur.
Tekið verður saman hvað er gert á Íslandi til að ná fram réttlæti eftir ofbeldi án þess að fara í gegnum réttarkerfið.
Kaffi og hádegismatur er innifalinn í miðunum fyrir staðfundinn: Hægt er að skrá sig hér
Dagskráin er svohljóðandi:
8:30 Skráning
9:00 Setning ráðstefnu
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir rithöfundur ævisögu Dr. Guðrúnar Jónsdóttur ”Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg”
9:30 Kynferðisofbeldi og samfélagsviðbrögð: Hvernig viðhorf og stuðningur hafa áhrif á bataferli
Þóra Sigfríður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri/sálfræðingur hjá Domus Mentis Geðheilsustöð
10:00 The Impact of Sexual Abuse on the Family System
Elizabeth Clemants, stofnandi og stjórnandi Hidden Water
11:00 Morgunkaffi
11:30 The framework of Hidden waters
Elizabeth Clemants, stofnandi og stjornandi Hidden Water
12:30 Fyrirspurnir og viðbrögð
12:45 Hádegismatur
13.30 I haven´t seen Barbados – Reynslusaga af bata
Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands
13:45 Annars konar leiðir að réttlæti: Reynsla af setu í fagráði sem tekur á kynbundnu ofbeldi
Finnborg Salóme ÞóreyjarSteinþórsdóttir, aðjúnkt í kynjafræði við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
14:15 Forvarnir og viðbrögð við ofbeldi meðal ungs fólks í Reykjavík
Kári Sigurðsson Verkefnastjóri forvarna hjá Skóla og frístundasviði Reykjavíkurborgar
14:45 Tölum saman!
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum
15:15 Uppbyggilegt réttlæti (e. Restorative Justice)
Kristín Skjaldardóttir, félagsráðgjafi og Restorative Justice facilitator, Domus Mentis Geðheilsustöð
15:45 Er hægt að sætta kynferðisbrotamál?
Kolbrún Benediktsdóttir, sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust
16:15 Lokaorð
16:30 Ráðstefnuslit
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.