Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Hóparnir eru samsettir af einstaklingum af sama kyni og á svipuðum aldri. Oftast eru um fjórir til sex einstaklingar saman í hópi sem stýrt er af starfsfólki Stígamóta eða hópaleiðara sem hefur farið í gegnum þjálfun með starfsfólki. Hóparnir standa yfir í um tíu vikur og byggir hver tími á ákveðnu þema sem farið er yfir hverju sinni.
Þessi leið til úrvinnslu á afleiðingum hefur gefið góða raun og er mikil reynsla komin á uppbyggingu hópanna. Það getur hjálpað mikið að tjá sig í öruggu rými við hóp af einstaklingum sem deila svipaðri reynslu og þú. Þá færðu tækifæri til að máta þína líðan við aðra og oftar en ekki öðlast dýpri skilning á þinni eigin líðan.
Við bjóðum upp á almenna hópa ásamt sérhæfðari úrræðum eins hóp fyrir brotaþola vændis, hópa fyrir ungar konar, karlahópa og sjálfsstyrkingarhópa.
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.