Ráðgjafi óskast19. ágúst 2020

Við á Stígamótum leitum að ráðgjafa í fullt starf til eins árs með möguleika á framtíðarstarfi. Um er að ræða viðbót í starfshópinn vegna aukinnar aðsóknar.

SKRUNAÐU

Við á Stígamótum leitum að ráðgjafa í fullt starf til eins árs með möguleika á framtíðarstarfi. Um er að ræða viðbót í starfshópinn vegna aukinnar aðsóknar.

Á Stígamótum tökum við á móti brotaþolum kynferðisofbeldis með það að markmiði að vinna úr áföllum og valdefla þá einstaklinga sem til okkar koma. Einnig sinnum við fræðslustarfi og vitundarvakningu um málaflokkinn.

Starfshópurinn á Stígamótum er samansettur af fagaðilum á ýmsum sviðum svo sem sálfræði, félagsráðgjöf, fjölskyldumeðferð, kynjafræði, listmeðferð, náms- og starfráðgjöf og fleira. Vinnustaðurinn er lifandi, skemmtilegur og í stöðugri þróun. Starfið byggist á reynslu okkar af vinnu með brotaþolum þar sem femínísk hugmyndafræði er höfð að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nýta styrkleika og hæfni hvers og eins starfskrafts.

Helstu verkefni:

  • Ráðgjafarviðtöl við brotaþola þar sem unnið er úr afleiðingum kynferðisofbeldis
  • Stuðningur við aðstandendur

Hæfni:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ráðgjafarstarfi mikilvæg
  • Grunnþekking á femínískri hugmyndafræði
  • Góðir samskiptahæfileikar og vilji til að leggja baráttunni lið
  • Drifkraftur og frumkvæði

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsókn sendist til Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur á netfangið [email protected]. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót