Opnunarhátíð Stígamóta1. apríl 2014

í nýju húsnæði á Laugarvegi 170, 2. hæð

Föstudaginn 4. apríl kl. 15 – 18

SKRUNAÐU

""

Opnunarhátíð Stígamóta

í nýju húsnæði á  Laugarvegi 170, 2. hæð
Föstudaginn 4. apríl kl. 15 – 18

Stígamót hafa nú flutt starfsemi sína á Laugarveg 170, 2. hæð.  Af því tilefni opnum við húsið og bjóðum samstarfsaðila okkar, velunnara og vinafólk velkomið.

Við höfum ekki bara stækkað húsakostinn um helming, við höfum líka ráðið inn sérfræðing í fötlunarmálum og boðið karl velkominn í starfshópinn.  Sá kemur til starfa í sumarbyrjun.

Klukkan 15 flytja starfskonur stutta kynningu á starfseminni í nýja rúmgóða fyrirlestrarsalnum okkar og síðan bjóðum við upp á kaffi og með því.

Við opnum líka myndlistarsýningu þeirra Söru og Svanhildar Vilbergsdætra og Kristínar Gunnlaugsdóttur.

Verið öll hjartanlega velkomin og látið boðið berast

Starfshópurinn

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót