Opið Hús: "Strákarnir á Stígó" 28. janúar, kl. 20:0026. janúar 2016

Við á Stígamótum höldum áfram að bjóða karla sérstaklega velkomna. Núna á fimmtudaginn verður haldið fyrsta strákakvöld eftir áramót. Í þetta skipti verður stutt kynning á bók eftir Mike Lew, sérfræðing í málefnum karlkyns brotaþola í Bandaríkjunum.

SKRUNAÐU

Við á Stígamótum höldum áfram að bjóða karla sérstaklega velkomna. Núna á fimmtudaginn 28. febrúar verður haldið fyrsta strákakvöld eftir áramót. Í þetta skipti verður stutt kynning á bók eftir Mike Lew, sérfræðing í málefnum karlkyns brotaþola í Bandaríkjunum. Bókin heitir Victims No Longer: A Guide for Men Recovering from Sexual Child Abuse. Bókin kom út upprunalega 1990 og síðan í endurbættri útgáfu 2004. Hún er talin vera ein af áhrifameiri verkum um karlkyns brotaþola. Einnig verður tækifærið notað til þess að kynna nýjan fræðslubækling um og fyrir karlkyns brotaþola sem Stígamót gaf út fyrir jól.

Það er Stígamótum mikilvægt að karlkyns brotaþolar upplifi sig velkomna og að öllum sé ljóst að karlar og strákar geti orðið fyrir kynferðisofbeldi. Viljum við nota tækifærið og gefa okkar körlum möguleika á að hittast og ræða málin við aðra karlkyns brotaþola, í traustu og öruggu rými.

Boðið verður upp á kaffi og góðgæti.

Húsið opnar klukkan 20:00.

Stígamót eru til húsa á Laugavegi 170, 2. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Hjálmar Sigmarsson, ráðgjafi á Stígamótum, [email protected]

Verið velkomnir.

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót