Opið Hús – Strákarnir á Stígó fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 20:0024. febrúar 2016

Við á Stígamótum höldum áfram að bjóða karla sérstaklega velkomna. Núna á fimmtudaginn 25.febrúar verður annað strákakvöld ársins. Í þetta skiptið verður kynning á breskri sjálfshjálpar handbók fyrir kalrkyns brotaþola, sem ber heitið: “A Self Help Guide for Males Who Have Been Sexually Abused”. Handbókin kom út 2014 og var gefin út af Survivors West Yorkshire, samtök sem vinna með brotaþolum kynferðisofbeldis.

SKRUNAÐU

Viljum við nota tækifærið og gefa okkar körlum möguleika á að hittast og ræða málin við aðra karlkyns brotaþola, í traustu og öruggu rými. Það er Stígamótum mikilvægt að karlkyns brotaþolar upplifi sig velkomna og að öllum sé ljóst að karlar og strákar geti orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Boðið verður upp á kaffi og góðgæti.

Verið velkomnir.

Stígamót eru til húsa á Laugavegi 170, 2. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Hjálmar Sigmarsson, ráðgjafi á Stígamótum, [email protected]

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót