Karl óskast til starfa á Stígamótum18. febrúar 2014

Óskað er eftir karli með áhuga og þekkingu á kynbundnu ofbeldi. Um er að ræða fullt starf í eins árs tilraunaverkefni með möguleikum á framhaldi. Starfið mun felast í ráðgjöf, starfrækslu sjálfshjálparhópa og fræðslu til þess að undirstrika enn frekar áherslu Stígamóta á ofbeldi gegn drengjum og körlum.

SKRUNAÐU

Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri sýn á samfélagið.  Samábyrgð, frumkvæði og traust eru forsendur farsæls starfs með vandasöm mál. Í starfshópnum ríkir bæði áhugi og starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita. Viðkomandi verður að hafa góða samskipta-  og samstarfshæfileika. 

Nám í félagsráðgjöf, sálfræði, lögfræði, kynjafræði, eða skyldum fræðum er jafnframt eftirsóknarvert. 

Við hvetjum alla karla með áhuga á starfsemi Stígamóta til að sækja um.

Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu 115, 105 R. fyrir 15. mars,  merktar ”Starfsumsókn”  Öllum umsóknum verður svarað. 

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót