Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Hugmyndaþing íslensku kvennahreyfingarinnar
Hallveigarstöðum 22. október 2011 kl. 13 – 17:30
Ykkur er boðið á hugmyndaþing íslensku kvennahreyfinganna um stöðu jafnréttismála og framtíðarstefnu, sem fram fer á Hallveigarstöðum laugardaginn 22. október n.k. frá kl. 13 til 17:30.
Boðað er til þingsins af Skottunum, nú ári eftir að konur sýndu enn á ný gríðarlegan samstöðumátt sinn á Kvennafrídegi. Þennan kraft viljum við virkja baráttunni til framdráttar í framtíðinni.
Rétt til setu á hugmyndaþinginu hafa öll samtök kvenna og geta allt að 5 konur frá hverjum samtökum sótt þingið. Verkefnin eru bæði ærin og brýn og því fleiri sem skrá sig, þeim mun öflugri verður vinnan.
Umræður fara fram á níu málefnaborðum og gefst hverri konu kostur á að taka þátt á þremur þeirra. Hópstjórar halda utan um umræður og flytja að þeim loknum niðurstöður hvers borðs.
Hugmyndaþinginu lýkur með móttöku sem stendur til kl. 19.
Vinsamlegast tilkynnið þátttakendur með tölvupósti á kvenrettindafelag @kvenrettindafelag.is. Skrá þarf fullt nafn og netfang hverrar konu.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 18. október nk.
Dagskrá:
Hugmyndaþing íslensku kvennahreyfinganna
Hvernig gerum við Ísland að paradís jafnréttis?
Hugmyndaþing um jafnréttissókn, laugardaginn 22. október n.k.
Hallveigarstöðum við Túngötu
Kl. 13 – 19
Dagskrá
13:00 Þingsetning
Guðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Skottanna
Kynningarmynd um Kvennafrídaginn 2010
13:10 Framkvæmd hugmyndaþingsins
Helga Guðrún Jónasdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands
13:15 Paradís kynjajafnréttis – 1. borð
14:00 Paradís kynjajafnréttis – 2. borð
15:00 Kaffihlé
15:30 Paradís kynjajafnréttis – 3.borð
16:15 Gaman saman
16:30 Niðurstöður
5 mínútna kynning frá hverjum hópstjóra
17:20 Hvatningarorð að þinglokum
17:30 Þinglok
17:45 Móttaka sem lýkur kl. 19
Hugmyndaþing íslensku kvennahreyfingarinnar
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.