Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Hér má finna lista yfir þá formlegu samstarfsvettvanga sem Stígamót taka þátt í en þess utan eiga Stígamót stöðugt í ýmsu óformlegu eða tímabundnu samráði og samvinnu við hina ýmsu aðila.
Bjarkarhlíð – Stígamót taka þátt í samstarfsverkefninu um Bjarkarhlíð og bjóða þar ráðgjöf. Jafnframt situr fulltrúi Stígamóta í framkvæmdastjórn, stjórn og mansalsteymi Bjarkarhlíðar. Bjarkarhlíð er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis þar sem brotaþolum gefst kostur á viðtölum og stuðningi frá fagaðilum, jafningjum, lögreglu og lögfræðingum þeim að kostnaðarlausu.
Jafnréttisráð – Stígamót deila sæti í Jafnréttisráði með Kvennaathvarfinu. Hlutverk Jafnréttisráðs er að starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera ráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum er tengjast jafnrétti kynjanna.
Ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkurborgar – Stígamót sitja í ofbeldisvarnarnefnd ásamt fulltrúum borgarinnar, lögreglu, Kvennaathvarfsins og embættis landlæknis. Ofbeldisvarnarnefnd skal vera borgarstjórn og nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um aðgerðir og viðbrögð við ofbeldi í samfélaginu. Nefndin skal stuðla að hvers konar upplýsingagjöf og samstarfi Reykjavíkurborgar við hagsmunasamtök, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þess.
Samráðshópur um aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu á vegum dómsmálaráðuneytisins – Hlutverk samráðshópsins er að vera vettvangur fyrir þá aðila sem eru ábyrgir fyrir aðgerðum samkvæmt áhersluskjali stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu og annarra aðila sem hafa innsýn, þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Alþjóðastarf Stígamóta hefur undið utan á sig undanfarin ár. Verkefnum hefur fjölgað og samstarf aukist. Alþjóðastarfið tryggir upplýsingaflæði um fyrirmyndarúrræði, fyrirmyndarlög, áhugaverðar rannsóknir, árangursríkar aðgerðir og mannréttindabaráttu almennt.
European Women’s Lobby
Stígamót eiga fulltrúa í EWL Observatory on Violence ásamt fulltrúum frá 32 löndum í Evrópu. Hlutverk hópsins er að vera með puttann á púlsinum varðandi þau málefni sem eru efst á baugi, hafa samráð um sameiginlegar aðgerðir og deila þekkingu.
CAP – Coalition Abolition Prostitution
Stígamót eiga aðild að CAP sem er alþjóðlegur samráðsvettvangur samtaka sem vinna með brotaþolum vændis. CAP beitir sér fyrir bættri löggjöf og stefnumótun sem hefur það að markmiði að draga úr eftirspurn eftir vændi og bæta aðstoð og þjónustu við brotaþola vændis.
WAVE – Women Against Violence Europe
Wave er samstarfsvettvangur evrópskra samtaka sem berjast gegn kynbundnu ofbeldi og veita brotaþolum þjónustu. Fulltrúi Stígamóta situr í Advisory Board hjá Wave.
Nordiske Kvinner Mot Vold
NKMV er norrænn samráðsvettvangur kvennaathvarfa og annarra samtaka sem veita brotaþolum kynbundins ofbeldis þjónustu. Ráðstefna er haldin árlega þar sem skipst er á upplýsingum og þekkingu um það sem er efst á baugi hverju sinni. Stígamót eiga fulltrúa í samráðshópi NKMV.
Meira um alþjóðastarfið má lesa í ársskýrslum.
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.