Erlendar konur á Stígamótum21. október 2015

Þriðjud. 27. okt. Kl. 8.30 – 10.00 á Laugavegi 170 22. hæð.
Claudia Ashonie Wilson sem situr í stjórn Samtöka kvenna af erlendum uppruna og Marai Larasi frá Imkaan sem eru samtök svartra feminista í Bretlandi halda framsögur.

SKRUNAÐU

Margbreytileiki og forréttindi

Á haustmisseri bjóða Stígamót upp á morgunverðarfyrirlestra um margbreytileika  og forréttindi.  Við höfum alltaf verið meðvituð um að heimurinn er ekki svarthvítur.  Þó að kyn hafa mikil áhrif á það hver okkar eru í mestri hættu á að vera beitt ofbeldi, þá spila margar aðrar breytur stór hlutverk líka.   

Við höfum þegar ráðið karl til starfa til þess  að endurspegla þann veruleika að ofbeldi kemur körlum við. Karlar eru beittir ofbeldi og þeir beita því sumir sjálfir.

Við höfum ráðið fötlunarfræðing til þess að endurspegla að ofbeldi gegn fötluðum er faldara og algengara en ofbeldi gagnvart öðrum hópum. Það varð til þess að við þurftum að endurskilgreina ofbeldi, því fatlaðir upplifa stundum aðrar birtingarmyndir ofbeldis en aðrir.

Því miður náum við verr til erlendra kvenna en íslenskra.  Þær  sækja sér síður hjálp vegna kynferðisofbeldis og við viljum tryggja að þær viti af þjónustunni og mæta þörfum þeirra, m.a. með túlkaþjónustu.

Tilgangur þessarar fyrirlestrarraðar er að skoða hvernig ólíkur bakgrunnur ýmissa hópa hefur áhrif á forréttindi, fordóma og mismunun. Sérstök áhersla verður á ofbeldi og aðgang að þjónustu til að vinna úr afleiðingum þess.

Verið öll velkomin, við bjóðum upp á kaffi og brauð og það er frítt inn!

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót