Hefur þú orðið fyrir kynbundnu eða kynferðislegu ofbeldi og vilt leggja lóð á vogarskálar breytinga? Hvað hefði gagnast þér? Hvað mætti laga í umhverfinu, kerfinu og viðbrögðum? Nú er tækifærið í öruggu rými þátttakendum að kostnaðarlausu.

Við bjóðum konum og kvárum uppá kvöldstund þar sem brotaþolum hvers kyns kynferðis- og kynbundins ofbeldis gefst tækifæri til að ræða og koma á framfæri því sem hefði gagnast þeim í kjölfar ofbeldis. Ekki er ætlunin að fjalla um brotin sjálf eða úrvinnslu einstaklinga heldur umhverfið, kerfið og aðstoðina sem bauðst eða bauðst ekki í kjölfar brots. Brotaþolakvöldið er öruggt rými þar sem við viljum mæta ákalli fjölda kvenna og kvára til að geta lagt sitt af mörkum til að bæta skilyrði umhverfisins í kjölfar brota og miðla af þekkingu sinni sem brotaþolar.

Viðburðurinn verður haldinn 24. mars kl. 19-21 og takmarkast fjöldinn við 40 manns. Staðsetning er á höfuðborgarsvæðinu verður gefin upp við þau sem skrá sig.

Nú er tækifærið að taka þátt í baráttunni og nýta reynsluna til að bæta samfélagið. Skráningarfrestur er til 22. mars.

"*" indicates required fields

Background Decor