Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Stígamót bjóða upp á ítarlegt tveggja daga námskeið um kynferðisofbeldi gegn konum, með sérstakri áherslu á hvað karlar geta gert til að berjast gegn því. Tilgangurinn er að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynbundið ofbeldi.
Staður: Stígamót, Laugavegi 170, 2. hæð
Tími.: 14.-15. apríl 2018 kl. 9:30-16:00
Umsóknarfrestur: 6. apríl 2018
Skráning: https://goo.gl/forms/MD4qVqa2rL13d3aJ2
Stígamót bjóða upp á ítarlegt tveggja daga námskeið um kynferðisofbeldi gegn konum, með sérstakri áherslu á hvað karlar geta gert til að berjast gegn því. Tilgangurinn er að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynbundið ofbeldi. Farið verður yfir hvernig baráttan hefur þróast og af hverju það er mikilvægt að karlar taki þátt í henni.
Markmiðið er að fara dýpra í mikilvæga þætti þessarar umræðu, þ.á.m. fjölbreyttar birtingarmyndir kynferðisofbeldis, afleiðingar kynferðisofbeldis, brotaþolavæna umræðu, reynsluheim kvenna, kynjamisrétti, klám, nauðgunarmenningu, skaðlega karlmennsku, forréttindi karla og umræðuna um ofbeldismenn. Áherslan verður á uppbyggilegar umræður um þessi þemu með það að leiðarljósi að skoða hvað karlmenn geta gert í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Dagskráin verður fjölbreytt með margskonar fyrirlestrum, hugarflæðisvinnu, heimildamyndum, æfingum og umræðum. Nánari dagskrá verður kynnt þegar styttist í námskeiðið.
Námskeiðið er haldið af starfsfólki Stígamóta. Stígamót eru femínísk samtök og efnistök námskeiðsins eru byggð á reynslu samtakanna af baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Námskeiðið er ókeypis og er fyrir karla 18 ára og eldri.
Nánari upplýsingar veitir Hjálmar G. Sigmarsson ráðgjafi á Stígamótum á netfanginu: [email protected]
Umsækjendum er frjálst að draga skráningu sína til baka hvenær sem er og þá verði upplýsingunum eytt.
Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna!
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.