Bandamenn: Námskeið fyrir karla sem vilja beita sér í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi12. september 2018

Stígamót bjóða upp á ítarlegt tveggja daga námskeið um kynferðisofbeldi gegn konum, með sérstakri áherslu á hvað karlar geta gert til að berjast gegn því. Tilgangurinn er að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynbundið ofbeldi. Farið verður yfir hvernig baráttan hefur þróast og af hverju það er mikilvægt að karlar taki þátt í henni.

SKRUNAÐU

 

Staður: Stígamót, Laugavegi 170, 2. hæð
Dagsetning: Helgina 20.-21. október 2018
kl. 9:30-16:00

Skráning: https://goo.gl/forms/7z67n6VYUuLNpXrP2

Námskeiðið er fyrir karla 18 ára og eldri.
Þátttökugjald: 1000 kr.                                                                                                                                                                                   

Stígamót bjóða upp á ítarlegt tveggja daga námskeið um kynferðisofbeldi gegn konum, með sérstakri áherslu á hvað karlar geta gert til að berjast gegn því. Tilgangurinn er að þátttakendur öðlist dýpri skilning á mikilvægum hugtökum og viðfangsefnum sem varða kynbundið ofbeldi. Farið verður yfir hvernig baráttan hefur þróast og af hverju það er mikilvægt að karlar taki þátt í henni. 

Markmiðið er að fara dýpra í mikilvæga þætti þessarar umræðu, þ.á.m. fjölbreyttar birtingarmyndir kynferðisofbeldis, afleiðingar kynferðisofbeldis, brotaþolavæna umræðu, reynsluheim kvenna, kynjamisrétti, klám, nauðgunarmenningu, skaðlega karlmennsku, forréttindi karla og umræðuna um ofbeldismenn. Áherslan verður á uppbyggilegar umræður um þessi þemu með það að leiðarljósi að skoða hvað karlmenn geta gert í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Dagskráin verður fjölbreytt með margskonar fyrirlestrum, hugarflæðisvinnu, heimildamyndum, æfingum og umræðum. Nánari dagskrá verður kynnt þegar styttist í námskeiðið.

Námskeiðið er haldið af starfsfólki Stígamóta. Stígamót eru femínísk samtök og efnistök námskeiðsins eru byggð á reynslu samtakanna af baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

Nánari upplýsingar veitir Hjálmar G. Sigmarsson ráðgjafi á Stígamótum á netfanginu: [email protected] 

Ekki hika við að hafa samband ef spurningar vakna!

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót