Allir krakkar og klámvæðingin26. október 2018

Vissir þú að meðalaldur íslenskra stráka þegar þeir horfa á klám í fyrsta skipti er 11 ára? Klámefni sem er aðgengilegt öllum á netinu í dag er í flestum tilfellum ofbeldisfullt og dregur ekki upp raunsæja mynd af kynlífi. 45% stráka í 8.-10. bekk á Íslandi horfa á klám einu sinni í viku eða oftar sem segir okkur að mjög margir strákar hafi séð margfalt fleiri klukkustundir af klámi en þeir hafa fengið af kynfræðslu og umræðu um þessi mál. Í klámi er markaleysi allsráðandi og lítil áhersla á samþykki og heilbrigð samskipti þannig að myndin sem margir strákar fá af kynlífi er ansi skekkt og óraunsæ.

SKRUNAÐU

Tölfræði Stígamóta sýnir að gerendur kynferðisofbeldis eru fyrst og fremst ungir menn. Ennfremur endurspegla frásagnir brotaþola áþreifanlega áhrif kláms. Kynferðisofbeldi er ekki náttúrulögmál heldur lærð hegðun og rannsóknir sýna að þar geti klámáhorf spilað stórt hlutverk og haft mikil áhrif, t.a.m. á viðhorf til kynlífs, upplifunar á kynlífi, kynverund áhorfandans og viðhorfs til kvenna. Það á enginn rétt á kynlífi – en sá sem heldur það er mjög líklegur til að fara yfir mörk. 

Á tímum óraunsærra fyrirmynda á samfélagsmiðlum og aukins aðgengis að klámi er mikilvægt að veita mótvægi við því áreiti sem krakkar fá þaðan um kynlíf og samskipti kynjanna. Það er mikilvægt að fræða alla krakka um kynlíf og gera þarf betur þegar kemur að samskiptum og mörkum. Sá sem beitir ofbeldinu er alltaf ábyrgur fyrir því – hins vegar ber samfélagið ábyrgð á því afskiptaleysi sem klámáhorfi unglinga er sýnt. Foreldar eru hluti af þessu samfélagi en þetta er ekki eingöngu þeirra viðgangsefni heldur einnig stjórnvalda, menntakerfisins og almennings alls. Klámvæðing og nauðgunarmenning varðar samfélagið og við verðum öll að vakna og hætta að líta undan!

Í dag hefst herferð Stígamóta #allirkrakkar en markmið hennar er að safna fé til að stofna fræðslumiðstöð innan Stígamóta sem sinnir fræðslu og forvörnum gegn kynferðisofbeldi. Við ýtum herferðinni úr vör með útgáfu leikinnar auglýsingar sem endurspeglar reynslu brotaþola sem leita til Stígamóta. Myndbandið sýnir þroskasögu tveggja krakka og hvernig staðalmyndir hafa alvarleg áhrif á samskipti þeirra. Í lokin er höfðað til foreldra og þeim bent á að allir krakkar geta orðið annað hvort gerendur eða þolendur kynferðisofbeldis. Auðvitað viljum við hvorugt og þess vegna þurfum við að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi!

Sendu SMS-ið ALLIRKRAKKAR í 1900 til að leggja þitt af mörkum (kr. 1900) til fræðslu og forvarnarverkefna Stígamóta.

Átakið mun ná hámarki fimmtudagskvöldið 1. nóvember kl. 20:40 með fræðsluþætti á RÚV sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Fyrir hönd Stígamóta,
Anna Bentína Hermansen

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót