Við viljum safna saman upplýsingum um áhrif Stígamóta í þau ár sem þau hafa verið starfandi í tilefni af 35 ára afmælinu. Það er frjálst val hvort þú undirritar með eigin nafni, dulnefni eða bara alls ekki. Gögnin verða tekin saman og einhverjir textar munu rata inn í ársskýrslu Stígamóta og svo verða frásagnirnar birtar á skjá í afmæli Stígamóta í Iðnó 6. mars næstkomandi. Við þökkum þér kærlega fyrir framlagið, hvort sem það er eigin frásögn, upplifun af starfi Stígamóta fyrir samfélagið eða bara afmælis- og baráttukveðja.

(Valkvætt)
Ef það kveikir hjá þér erfiðar tilfinningar að skrá þetta niður máttu að sjálfsögðu hafa samband við Stígamót og við komum þér að við fyrsta tækifæri. Sendu póst á [email protected] og endilega taktu fram að þú viljir samtal/ráðgjöf í kjölfar frásagnar.
Background Decor