Brotaþolaþing Stígamóta og Vitundar17. mars 2026

Ert þú kona eða kvár sem hefur orðið fyrir kynbundnu- eða kynferðislegu ofbeldi? Iðarðu í skinninu að breyta samfélaginu og nýta reynslu þína öðrum til góðs? Vitund og Stígamót boða til fyrsta brotaþolaþingsins fyrir konur og kvár hinn 24. mars. Ekki er ætlunin að fjalla um brotin sjálf eða úrvinnslu einstaklinga heldur umhverfið, kerfið og aðstoðina sem bauðst eða bauðst ekki í kjölfar brots. Brotaþolakvöldið er öruggt rými þar sem við viljum mæta ákalli fjölda kvenna og kvára til að geta lagt sitt af mörkum til að bæta skilyrði umhverfisins í kjölfar brota og miðla af þekkingu sinni sem brotaþolar.

Takmarkaður fjöldi kemst að, hér má skrá sig

SKRUNAÐU

Fleiri greinar

Hafa samband

Senda fyrirspurn

Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.

Panta tíma

Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.

Hafa Samband möguleikar Stígamót