Staðfesting á móttöku

Við höfum móttekið ósk um tímapöntun. Þú ert komin/n/ð á biðlista og munum við hafa samband þegar röðin er komin að þér. Biðtíminn er um 8-12 vikur.

Við bendum á fræðslusíðu um afleiðingar kynferðisofbeldis hér og á Stígamóta hlaðvarpið sem fjallar um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi en það er aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum.

Einnig bendum við á Sjúktspjall sem er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða sambönd, samskipti og/eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 25 ára af öllum kynjum og er opið mán-þri-mið frá kl. 20-22.

Ef um neyðartilvik er að ræða hafðu samband við neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.