Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Því miður búum við ennþá í samfélagi þar sem sjá má ríka tilheigingu til þess að gera lítið úr þætti ofbeldismanna og réttlæta hegðun þeirra með tilvísun í hegðun brotaþola.
Næstkomandi laugardag verður Druslugangan haldin í fjórða skiptið. Gengið verður frá Hallgrímskirkju kl. 14:00 og niður á Austurvöll. Hugmyndin að baki Druslugöngunnar er að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá brotaþolum yfir á þá sem beita kynferðisofbeldi og skila þar með skömminni sem svo margir brotaþolar upplifa.
Hér er myndband með Reykjavíkurdætrum, Halldóri Eldjárn og Ásdísi Maríu þar sem stungið er á þessu kýli samfélagsins:
http://infront.is/myndbond/islenskar-druslur/
Hjá Stígamótum leggjum við ríka áherslu á að uppræta skaðlegar staðalímyndir sem tengjast kynferðisofbeldi. Til þess að fyrirbyggja ofbeldi og til þess að takast á við afleiðingar þess, þarf að hafa skilning á fyrirbærinu og heildarsýn í huga. Enn má sjá ríka tilheigingu til þess að gera lítið úr þætti ofbeldismanna og réttlæta hegðun þeirra með tilvísun í hegðun brotaþola. Ósýnileiki og þöggun gegna svipuðu hlutverki og má sjá mýmörg dæmi um slíkt í bæði tali og myndefni í fræðslu. Úr þessu verður að bæta ef létta á ábyrgðinni af brotaþolum og losa þá við órökrétta skömm og sektarkennd.
Næstkomandi laugardag verður Druslugangan haldin í fjórða skiptið. Gengið verður frá Hallgrímskirkju kl. 14:00 og niður á Austurvöll. Hugmyndin að baki Druslugöngunnar er að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá brotaþolum yfir á þá sem beita kynferðisofbeldi og skila þar með skömminni sem svo margir brotaþolar upplifa aftur þangað sem hún á heima.
Hér er myndband með Reykjavíkurdætrum, Halldóri Eldjárn og Ásdísi Maríu þar sem stungið er á þessu kýli samfélagsins:
http://infront.is/myndbond/islenskar-druslur/
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.