Hafa Samband
Opnunartímar móttöku
-
Mánudaga
9-16
-
Þriðjudaga
9-16
-
Miðvikudaga
9-16
-
Fimmtudaga
11-16
-
Föstudaga
9-16
-
Helgar
Lokað
Óskað er eftir starfskrafti með áhuga og hvers kyns þekkingu og/eða reynslu á kynbundnu ofbeldi. Um er að ræða fullt starf.
Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri sýn á samfélagið. Daglega starfið felst í viðtalsþjónustu og hópastarfi með fólki sem beitt hefur verið ofbeldi.
Samábyrgð, frumkvæði og traust eru forsendur farsæls starfs með vandasöm mál. Í starfshópnum ríkir bæði áhugi og starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita. Viðkomandi verður að hafa góða samskipta og samstarfshæfileika. Nám í félagsráðgjöf, sálfræði, kynjafræði, eða skyldum fræðum er jafnframt eftirsóknarvert.
Við hvetjum alla með áhuga á starfsemi Stígamóta til að sækja um. Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu 115, 105 R. fyrir 5. okt. merktar ”Starfsumsókn” Öllum umsóknum verður svarað.
Óskað er eftir starfskrafti með áhuga og hvers kyns þekkingu og/eða reynslu á kynbundnu ofbeldi. Um er að ræða fullt starf.
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að senda okkur línu.
Það er aldrei of seint. Pantaðu tíma núna.