|
Óskað er eftir starfskrafti með áhuga og hvers kyns þekkingu og/eða reynslu á kynbundnu ofbeldi. Um er að ræða fullt starf.
Starfsemi Stígamóta er krefjandi, gefandi og fjölbreytt grasrótarstarf sem byggir á kynjaðri sýn á samfélagið. Daglega starfið felst í viðtalsþjónustu og hópastarfi með fólki sem beitt hefur verið ofbeldi.
Samábyrgð, frumkvæði og traust eru forsendur farsæls starfs með vandasöm mál. Í starfshópnum ríkir bæði áhugi og starfsgleði sem mikilvægt er að varðveita. Viðkomandi verður að hafa góða samskipta og samstarfshæfileika. Nám í félagsráðgjöf, sálfræði, kynjafræði, eða skyldum fræðum er jafnframt eftirsóknarvert.
Við hvetjum alla með áhuga á starfsemi Stígamóta til að sækja um. Umsóknir sendist til Stígamóta, Hverfisgötu 115, 105 R. fyrir 5. okt. merktar ”Starfsumsókn” Öllum umsóknum verður svarað. |