Stígamót - Grasrótarhreyfing gegn kynferðisofbeldi

 Ég vil gerast styktaraðili Stigamóta

Pólska
Tailenska
Spænska
Enska
Rússneska
 

Hverjir leita til okkar?

Stígamót eru fyrst og fremst ráðgjafar- og stuðningsmiðstöð fyrir konur og karla sem hafa verið beitt hvers kyns kynferðisofbeldi og aðstandendur þeirra.

Hingað kemur fólk frá 18 ára aldri vegna ofbeldis sem það hefur verið beitt, bæði í æsku og á fullorðinsárum. Margir sem hingað leita, koma vegna ofbeldis sem átti sér stað fyrir mörgum árum og jafnvel áratugum síðan. Þú ert velkomin til Stígamóta…

  • ef þú hefur einhvern tímann verið beitt(ur) kynferðisofbeldi
  • ef þú þekkir einhverja/einhvern sem hefur verið beitt(ur) kynferðisofbeldi
  • ef þú ert að leita að ráðgjöf og upplýsingum varðandi kynferðisofbeldi
  • ef þú hefur starfað eða starfar í kynlífsiðnaðinum

Með aukinni reynslu verður okkur hjá Stígamótum ljósara samhengið á milli kynferðisofbeldis, vændis og mansals. Til okkar hafa margar konur og nokkrir karlar leitað vegna starfa í kynlífsiðnaðinum. Mörg eiga þau það sameiginlegt að hafa upplifað kynferðisofbeldi og í framhaldi af því leiðst út í fíkniefnaneyslu sem síðan hefur verið fjármögnuð með vændi. Þetta fólk hefur lýst nær óbærilegri skömm og vanlíðan. Það hefur þolað mikla auðmýkingu, ofbeldi og hatur og því hefur þótt mikilvægt að geta rætt þessa reynslu sína. Það hafa konur frá nektarstöðunum svokölluðu leitað hjálpar hjá Stígamótum.

Stuðningur og ráðgjöf starfskvenna Stígamóta eru ekki eingöngu bundin við þá sem beittir hafa verið kynferðisofbeldi. Aðstandendur, svo sem foreldrar, makar og vinir geta einnig fengið stuðning og ráðgjöf á Stígamótum óski þeir þess. Umfangsmikið ráðgjafarstarf fer einnig fram í gegnum síma, það er einkum fólk utan höfuðborgarsvæðisins sem notfærir sér þessa leið, bæði brotaþolar, aðstandendur þeirra, sem og ýmsir fagaðilar sem vilja fá ráðleggingar eða hafa grun um að börn í þeirra umsjá kunni að hafa verið beitt kynferðisofbeldi. Einnig er hægt að vera í tölvusambandi við ráðgjafa.

 

Afleiðingar kynferðisofbeldis

Yfirlýsingarnar hér að neðan eru nokkuð dæmigerðar fyrir þá einstaklinga sem beittir hafa verið kynferðisofbeldi. Þegar þú ferð yfir listann getur þú fundið hvort einhverjar þeirra eiga við þig. Ef svo er hafðu þá samband…
 

Sjálfsálit

  • Mér finnst ég vera skítug(ur), eins og það sé eitthvað að mér...
  • Ég er öðruvísi en annað fólk...
  • Ef fólk þekkti mig eins og ég er þá hafnaði það mér...
  • Ég hata sjálfa(n) mig...
  • Ég er misheppnuð(-aður), ég á erfitt með að skila af mér góðu verki...

Tilfinningar mínar

  • Ég held að tilfinningar skipti ekki miklu máli...
  • Yfirleitt veit ég ekki hvernig mér líður...
  • Ég er oft leið(ur) eða þunglynd(ur)...
  • Ég verð óörugg(ur) þegar allt er rólegt og þægilegt..
  • Ef ég slaka á, þá missi ég stjórn á tilfinningum mínum...

Líkami minn

  • Líkami minn er oft dofinn, tilfinningalaus...
  • Ég hlusta ekki vel á líkama minn, (svengd, þreyta, verkir)...
  • Ég svelti mig eða borða og kasta upp...
  • Mér finnst líkami minn ljótur...
  • Ég nota áfengi eða lyf meira en ég held að ég ætti að gera...

Náin kynni

  • Mér finnst ég oft vera einangruð(-aður), eins og ég sé frá annarri plánetu...
  • Mér líður vel með vinum mínum en á erfitt með elskhuga...
  • Ég á erfitt með að treysta fólki...
  • Ég held að fólk muni yfirgefa mig...
  • Ég á erfitt með að segja NEI...

Kynlíf

  • Ég forðast kynlíf, innst inni óska ég þess að þurfa aldrei að lifa kynlífi framar...
  • Ég fæ ekki mikla ánægju út úr kynlífi, yfirleitt stunda ég kynlíf fyrir aðra...
  • Ég leita eftir kynlífi sem mig langar þó ekki í...
  • Ég er best(ur) í kynlífi...
  • Ég á erfitt með að vera "á staðnum" í kynlífi...

Börn og foreldrar

  • Ég á erfitt með að sýna börnunum blíðu...
  • Ég á erfitt með að setja börnunum mörk...
  • Ég á það til að ofvernda börnin...
  • Mér finnst ég vera ófullkomið foreldri...
  • Börnin mín hafa verið beitt ofbeldi...

Stórfjölskyldan mín, ættin

  • Samband mitt við fjölskylduna er mjög þvingað...
  • Ég á erfitt með að setja fjölskyldunni mörk...
  • Sumir fjölskyldumeðlimir hafa hafnað mér (eða ég þeim)...
  • Ég get ekki verið heiðarleg(ur) gagnvart fjölskyldu minni...
  • Ég verð brjáluð(-aður) þegar ég umgengst fjölskylduna mína...