| 20 ára afmæli Stígamóta |
|
Nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeimRáðstefna í tilefni af 20 ára afmæli Stígamóta
Á Grand hóteli þriðjudaginn 9. mars 2010
Kl. 13-17
Fundarstýra er Guðrún Agnarsdóttir
Dagskráin er hugsuð þannig að nauðgunarmálum sé fylgt frá verknaði og staldrað við á öllum stigum þar til hugsanlegir dómar falla. Hvað gerist í meðförum hvers stigs. Er meðferðin viðunandi eða getum við hjálpast að við að bæta hana.
1. Dómsmálaráðherra Ragna Árnadóttir opnar ráðstefnuna
2. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann höfundur bókarinnar “Á mannamáli”: "Og af hverju kærðirðu ekki?"
3. Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta ”Eru nauðganir ásættanlegar?”
4. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir, ” Brotalömin í rannsókn og meðferð kynferðisbrotamála“
5. Katrín Anna Guðmundsdóttir jafnréttishönnuður; ”Flugvélin var á lofti þegar hún hrapaði” – um konur, fjölmiðlun og öryggi
6. Þorbjörg Inga Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður ræðir aðkomu réttargæslumanna að nauðgunarmálum
7. Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu Stefán Eiríksson: ”Hlutverk og verkefni lögreglu í nauðgunarmálum“
8. Ríkissaksóknari Valtýr Sigurðsson ”Aðkoma embættis ríkissaksóknara að nauðgunarmálum”.
9. Ragnheiður Harðardóttir settur héraðsdómari ræðir meðferð nauðgunarmála fyrir dómi
10. Umræður
|